Bloggfærslur mánaðarins, desember 2009
NÚ ÁRIÐ ER LIÐIÐ Í ALDANNA SKAUT OG SKAUP ÞESS ER ALVARAN FARIN !
31.12.2009 | 23:57
Gleðilegt nýtt ár allir Íslendingar. Ég nennti ekki að horfa á skaupið, ég var að vísu að aka frá Kef til Rey. Fór þar í mat til sonar míns. Ég var á mörkunum að treysta mér í það að keyra fram og til baka ( mín veikindi) , en bað til Guðs að ég gæti komist til hans. Og það gekk eftir. Nú logar allur himinn af ljósasýning landans og reykjarslæðan er all mikil !
En svona eru áramótin
.
GLENS
OG GAMAN 





!
NÝÁRSKVEÐJAN MÍN TIL YKKAR................. ER EFTIRFARANDI !
31.12.2009 | 17:35
Í öllum látunum í kvöld ,þegar hávaðinn er sem mestur skaltu nota tækifærið og öskra af öllum lífsins sálar kröftum í góða stund og þá nærðu að að losa allt stressið út í tómið og heldur róleg/ur heim á leið eftir miðnættið og býður nýtt ár velkomið.
Á morgunn, Nýársdag,...... sefur þú út, sem aldrei fyrr
og byrjar svo nýtt ár...... þegar þú vaknar
með því að kyssa...... alla fjölskyldumeðlimina og segir.
Hið gamla er farið....... og nýtt er komið !.
Svo óska ég öllum landsmönnum nær og fjær
Gleðilegs árs og friðar með von í hjarta
að birtist okkur framtíðin bjarta.
MAÐUR ÁRSINS SAGÐI SKÝRT: Í ÁHEYRN ALLRA GESTA , ÞÁ ÆTLA ÉG AÐ FRESTA.... !
31.12.2009 | 17:08
ALLIR ráðherrar eru hættir við hátíðarsteikina í kvöld að undanskildum Össuri. Hann ætlar að skjóta skipa-rakettunum sem hann fékk hjá innkaupastofnun Ríkisins, á eftir lifrarpylsunni sinni sem hann hefur á borði sínu í kvöld. Í alvöru talað þá gat þetta ekki farið öðruvísi. Já. nú verða miklar hugakvalir Jóhönnu og Steingríms að veruleika. Ég tók nú ekki eftir hvað þessar spákellingar í vikuritum og dagblöðum, eru að velta upp úr sér, en það má svona ýja að því að það sé nokkuð samstíga því sem er að gerast.
Þetta er allt svo augljóst !
Gengið heim, frá Bessastöðum !
|
Engin ákvæði um frest forseta |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
JÆJA ,KOMIÐ ÞIÐ SÆL RÍKISSTJÓRN ÍSLANDS.NÚ SEGI ÉG YKKUR: GELDUR SÁ ER VELDUR ! HA ! SAGÐI JÓHANNA, ORÐLAUS !
31.12.2009 | 13:41
ALLVEG eftir bókinni eins og ég var búinn að hugsa þetta. Ráðherrar og þingmenn Ríkisstjórnarinnar , hafa meira og minna verið að hnýta í, og finna að embættisverkum Forsetans allt þetta ár. Og nú hefur hann góða ástæðu til að taka þau á tauginni í einhverja daga, og ég væri hissa eftir allt sem á undan er gengið...... að hann hleypi þessu framhjá ÁN ÞJÓÐARATKVÆÐAGREIÐSLU.!
Gleymum því ekki að þó að Forsetanum hafi orðið á í einhverjum tilvikum þá held ég persónulega að aðrir megi líta sér nær.
Og Ólafur Ragnar Grímsson Forseti Íslands, er enginn nýgræðingur í alþjóðamálum , hvað þá heldur Íslenskri Pólitík.Ég myndi segja að þessi óvissa kallaði á margar salernisferðir ýmsra ráðamanna yfir áramótin. Það verður gefin út yfirlýsing frá Ólafi þann 2 jan til 4 jan 2010. Spái ég !
Sjáum svo hvað verður !
|
Forseti tekur sér frest |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
FORSETI ÍSLANDS ER EKKI DAUÐUR ÚR ÖLLUM ÆÐUM, EN NÚ MÆÐIR MIKIÐ, Á SYNI VINAR MÍNS.
31.12.2009 | 07:18
NÚ er komið að þætti Ólafs Ragnars Grímssonar. Hvað gerir hann við öllum þessum áskorunum sem safnast hafa til þess að biðja hann ásjár og neita að skrifa undir Icesave frumvarpið. Já, ég segi og tel það augljóst, sem er þó alls ekki augljóst að hann fari eftir áskoruninni, þó ótvírætt sterk er !
Jú, hann getur gert það, svona til að sýna stjórnmálamönnum að hann er meira virði , en að vera alltaf fyrir skítkasti hinna og þessara í þjóðfélaginu, vegna eiginhagsmuna þeirra sjálfra, og eru þeir margir.
Hann getur haft veruleg áhrif eins og embætti hans í dag leyfir.
Ég get ekki séð það fyrir mér að hann láti segjast
nema af eigin sannfæringu
og því sem að við köllum" Þjóðinni fyrir bestu !
Kemur í ljós, kemur í ljós , og þangað til .....biðjið fyrir þjóðinni !
(ÉG verð að segja ykkur frá því að Grímur hárskeri faðir Ólafs Ragnars Forseta var skipaður sérlegur hárskeri minn,
þegar ég var saklaus drengsnáði, vestur á Ísafirði,
Ég treysti honum til þess að lyfta mér hátt upp
í rakarastólinn sinn og setja mig niður á spýtu sem að ég sat svo grafkyrr á , meðan hann klippti mig.
Ég treysti honum og hann var vinur minn.) 
|
Yfir 42 þúsund skorað á forseta |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 08:04 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
27 DAGA FRÍ FYRIR ALÞINGISMENN ER OF LANGT Í ÞESSUM AÐSTÆÐUM ! HVAÐ SKYLDI SKIPSTJÓRI GERA, MEÐ SÖKKVANDI SKIP SITT ? FARA Í FRÍ ?
31.12.2009 | 03:28
GLEYMIÐ ÞVÍ EKKI kæru alþingismenn og konur að fólkið í landinu er ekki að fá 27 daga frí frá störfum , vegna þess að það er búið að vinna "yfir sig ". Nei,það verður að halda áfram sínu daglega striti, við vinnu og heimili eða þá sem verra er atvinnuleysi og að halda heimilinu gangandi við þær aðstæður sem eru hjá okkur öllum í mismunandi litrófi.
Alþingismenn og konur hafa það gott fjárhagslega og þurfa ekki að glíma við þann vanda, eða vanda við að missa ofan af sér.
Launin sem að þeir hafa eru það góð !
það eru rosalega mörg bráðaðkallandi verkefni sem verður að ráðast strax í .
Og það er að hjálpa heimilinum
EINS OG LOFAÐ VAR !
Þess vegna er 10 dagar allveg nóg frí !
|
Hlé á þingstörfum til 26. janúar |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
HÆTTULEGASTI VÍRUS OKKAR VAR...UPPGANGUR OG NÚ ER LAUSNIN...NIÐURGANGUR ! HVAÐ TEKUR SVO VIÐ ?
31.12.2009 | 02:12
Í slæmum umgangspestum fylgist oft að, Uppgangur og Niðurgangur, það þekkjum við öll. Þetta er leið LÍKAMANS að losa sig við EITUREFNI sem að hann veit, að eiga ekki að vera í honum. Ég get ekkert skýrt það nánar, en svona er þetta og því fær enginn breytt.
Þegar við hressumst eftir viðveru svona vírusa eða þá baktería, þá höldum við hress af stað og í okkar daglegu störf, hver sem að þau eru. Þannig er það núna .
Það er gífurlega mikli vinna eftir ,þó að þetta mál sé komið í þennan farveg. Nú er tími endurskoðunar og endursköpunnar lífsgilda okkar og það fyrir alvöru, annars verðum við í sama drullupyttinum !
|
Alþingi samþykkti Icesave |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
NÚ ER STÓRI DÓMUR FALLINN OG NÚ ER GENGIÐ TIL AFPLÁNUNAR DÓMS, EINS OG VERA BER !
31.12.2009 | 00:14
ÉG hefði viljað sjá aðra niðurstöðu, en við verðum að halda okkur við lýræðislegan kosningarétt þar sem að meirihluti ræður, þó að það sé agalega súrt stundum. Það er að segja ef að við viljum halda í lýðræðið. Ég var meðvitundarlaus í allan dag og fram á kvöld (mín veikindi). vaknaði til vitundar í miðri atkvæðagreiðslunni um Icesave og það fór sem Alþingismenn kusu.
Eins og ég sé þetta núna,
þá er ekki annað en að henda sér í djúpu laugina
og koma atvinnulífinu í fullan gang.
SKILYRÐISLAUST hjálpa yfirskuldsettum heimilum
og leggja ESB algörlega til hliðar,
það er annað og mikilvægara á dagskrá, en sú vitleysa !
Ég þarf að skoða allt
miklu betur og rólega
í ljósi niðurstöðu Alþingismanna og kvenna..... okkar Íslendinga.
|
Felldu tillögu um þjóðaratkvæði |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
NÚ SJÁUM VIÐ Á SVÖRTU OG HVÍTU HVERNIG ÆÐSTA VALD ÞJÓÐARINNAR VINNUR. JÓHANNA OG FLINTSTONE !
30.12.2009 | 18:11
Mér hefur aldrei verið eins mikið misboðið á einum sólarhring og allri minni æfi, sem telur meir en tveir vetur, aldrei ! það er logið svoleiðis og logið að það eitt útaf fyrir sig er ógeðslegt af fólki sem ætlast er til af okkur að við berum virðingu fyrir. Ég segi nei . Lygin mun að lokum, enda í miklum logum og eldsmaturinn verða þeir sem lugu !
Og núna stoppuðu þeir tölvupóstana
frá Reya lögfræðiskrifstofunni.
Það var bara sagt
:Hættið að senda Póst !
|
Bjóða eiðsvarinn vitnisburð |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
NEI !OG AFTUR NEI ! SEGIR SÁ SEM VALDIÐ HEFUR...........HVAÐ TEFUR, ICESAVE ? SAGÐI HANN SVO .
30.12.2009 | 15:20
það er þá Lærisveinn Marx ,Lenins og Stalins ,sem ætlar að segja þjóðinni fyrir verkum. Hann veit að það er búið að loka öllum GEÐDEILDUM, svo að hann fær EKKI inni þar að sinni og þá er bara að dansa fyrir utan þar til hann fær pláss. Þvílíkur HROKI, að geta ekki mætt fyrir nefndina, segir mér að hann og fleiri i stjórnsýslunni (að vísu er hann sendiherra) fara sínu fram . Þeir og þær eru Ríki... í Ríkinu.
Ég held að það sé allveg útséð með það
að það þarf að afskrá svona fólk
af launalista Ríkisins.
Í dag og ekki seinna en á morgunn !
|
Svavar neitaði að mæta á fundinn |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |


heidathord
audurm
johanneliasson
bjarnigestsson
vestfirdingurinn
ksh
iceberg
kolbrunerin
larahanna
kiddikef
naflaskodun
finni
skagstrendingur
dagsol
neytendatalsmadur
morgunblogg
lillo
jonsnae
jennystefania
jonlindal
asgerdurjona
vistarband
rosaadalsteinsdottir
zeriaph
aglow
arncarol
doralara
skralli
olijoe
katlaa
roslin
gudruntora
martasmarta
hallarut
blindur
amman
disdis
thjodarsalin
ruth777
tara
juliusvalsson
sigurbjorns
tigercopper
ulli
valgeirskagfjord
laglegust82
bryndiseva
ernafr
vonin
liljabolla
jonaa
gmaria
alit
tungirtankar
heidistrand
heidihelga
maeglika
katrinsnaeholm
halkatla
baenamaer
jonvalurjensson
rannveigh
jenni-1001
stingi
liso
trukona
theodorn
siggahulda
adhdblogg
hector
solthora
forvitin
krist
sjos
hebron
ghordur
erlan
hognihilm64
esv
hafeng
coke
gotusmidjan
siggisig
thormar
jakobk
reykas
skarfur
garibald
siggith
evaice
nonniblogg
beiker
seinars
kaffi
birgirsm
jon-o-vilhjalmsson
jonerr
kketils
steinibriem
himmalingur
agbjarn
konnadisa
olafurthorisson
topplistinn
loftslag
fullvalda
ansigu
faktor
bofs
fun
bassinn
saemi7

