Færsluflokkur: Matur og drykkur

STEIKTUR FISKUR FRÁ FÖSTUDAGSKV. AÐ MÁNUDAGSHÁDEGISVERÐI.

Hvernig er hægt að borða steiktan fisk í 6 segi og meina sex máltíðar í röð,að sjálfsögðu á sínum tíma.Þetta afrekaði ég.Og er ég að velta því hvort ég sé skyldur Gísla mínum á Uppsölum er sauð sér Lambasúpukjöt fyrir vikuna,breiddi Sauðagæruna vel yfir sig ´tvöföldu setti og bauð síðan alþjóð "Góða nótt".

Einhver væri búinn að segja ,hingað og ekki lengra með svona Maraþon FISKIÁT. En þetta kom ekki til af góðu.Ég ætlaði að bjóða í mat á Föstudagskvöld.Gerði allt klárt eldaði með mikilli reisn

  Al Íslenska ýsu,steikta í KÖTLU raspi með mikið af lauk.steikta uppúr ekta Stjörnu Smjörlíki.Þetta voru 10 góðir bitar enginn skyldi frá borði fara svangur(eina matarboðið mitt í 8 mánuði).Með þessu sauð ég helling af Íslenskum Rauðum kartöflum,og svo  mitt SPES ferska  salat sem verður til AÐEINS HEIMA HJÁ MÉR. ALLT KLAPPAÐ OG KLÁRT.

OG SVO KLIKKAÐI ALLT,allt sem ég planaði       hrundi.

 ENGINN KOM!

Ég er þannig að ég hendi ekki mat og það tók mig þennan tíma að klára blessuðu ýsuna og meðlætið.

 Hvað ef þetta hefði nú verið SKATA, VESTFIRÐSK MEÐ 4A LITA MÖR 

OG HELLING AF ÞREYTTUM EITLUM STEIKTUM?(mör).

ÉG er að fara út í verslun að kaupa mér eitthvað KJÖTKYNS fyrir næstu máltíð eða kannski hráefni fyrir SALAT!

 Þvílík endurnýjun á á einum skrokki, mér finnst sem ég fljúgi, nei frekar að ég ljúgi.(Skamm).

 FISK Í HVERJA MÁLTÍÐ.( OF DÝRT FYRIR MIG!).

 


Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband